Það er Premierferðum sannkallað ánægjuefni að geta að nýju boðið úrval ferða á leiki í vinsælustu knattspyrnudeild heims, Premier League.
Nú þegar eru meira en 40 ferðir komnar í sölu hjá okkur og þeim á eftir að fjölga meira er líður á sumarið.
Ef þú ekki finnur ferð á leikinn sem þú hefur áhuga á, sendu okkur þá fyrirspurn og við gerum hvað við getum til að setja saman ferð fyrir þig.
Þú finnur allar ferðirnar okkar hér.
Til þess að flýta fyrir þér í leitinni er gott að nota síuna sem er fyrir ofan Premier League merkið efst t.v. á síðunni. Ef þú ert að leita að leikjum með Evrópumeisturum Chelsea þá smellirðu á „Sía“ og opnar síðan felliglugga undir „Barclays PL“ og smellir á Chelsea.