Vonir Arsenal um að komast í Champions League á ný runnu út í sandinn á lokaspretti síðustu leiktíðar. Til að bæta gráu ofan á svart varð Arsenal að sjá á eftir 4. sætinu í hendur erkióvinarins í Tottenham.
Mikael Arteta hefur undanfarin ár verið að losa sig við leikmenn sem ekki hafa staðið undir væntingum og lagt áherslu á að byggja upp liðskjarna ungra leikmanna. Ferlinu hefur fylgt óstöðugleiki, sem hefur verið helsti óvinur Arsenal.
Á góðum degi leikur liðið leiftrandi skemmtilegan fótbolta en svo koma dagar þar sem liðið virkar andlaust. Takist að laga þetta má reikna með Arsenal í toppslag á ný.
Innifalið í verði: Flug með easyJet til London, út um hádegi 3. mars og heim miðdegis 6. mars. Full farangursheimild. Gisting í 2ja manna herbergi með morgunverði í 3 nætur á 3* hóteli í miðborg Lundúna og Club Level-sæti á Emirates með aðgengi að gestastofum fyrir og eftir leik.
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef tveir fullorðnir og tvö börn (15 ára og yngri) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x2
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.