Skelltu þér með okkur í ógleymanlega 3ja nátta ferð til Liverpool dagana 22. – 25. mars 2024, þar sem hápunkturinn er kvöldskemmtunin „Bítlarnir af fingrum fram í Cavern Club“ – sögustund í tónum og tali með Jóni Ólafssyni.
Í ferðinni fögnum við rúmlega 60 ára sögu þeirra John, Paul, George og Ringo, en sá síðastnefndi gekk til liðs við The Beatles árið 1962.
Við kynnum okkur töfra tónlistar Bítlanna og söguslóðir fjórmenninganna, njótum lífs í mat og drykk og sumir vilja e.t.v. kíkja aðeins í búðir en miðborg Liverpool er afar hentug til slíks.
Verð á mann kr. 174.800*
*Verð á mann m.v. gistingu í 2ja manna herb. Aukagjald fyrir einbýli kr. 35.000.
Tónlist Bítlanna ruddi nýjar brautir í dægurtónlist á sínum tíma. Slíkur er máttur tónlistar fjórmenninganna frá Liverpool að hún lætur engan ósnortinn meira en hálfri öld eftir að síðustu plötur Bítlanna komu út.
Fleiri ferðamenn koma til Liverpool á hverju ári til þess að kynna sér sögu og söguslóðir Bítlanna en til að fara á knattspyrnuleiki og eru þó tvö þekkt knattspyrnulið í borginni.
Jón Ólafsson, tónlistarmaður, þekkir tónlist Bítlanna eins og lófann á sér. Hann mun leiða þátttakendur í gegnum ótrúlegan tónlistarferil fjórmenninganna í tali og tónum á ljúfri kvöldstund í hinum goðsagnakennda Cavern Club.
Færri komust að en vildu í fyrri Bítlaferðirnar okkar
– þetta er aukaferð vegna mikillar eftirspurnar!
Sem borg á Liverpool sér stórmerkilega sögu, löngu fyrir tíma Bítlanna. Á tímum iðnbyltingarinnar varð Liverpool helsta útflutningshöfn Bretlands. Fyrir vikið varð Liverpool snemma vagga fjölmenningar. Liverpool var jafnframt á gullöld borgarinnar miðstöð farþegasiglinga yfir Atlantshafið.
Sterk tenging borgarinnar við Bandaríkin mótaði ekki aðeins sögu hennar að vissu leyti heldur voru þessi tengsl ekki síður uppspretta þeirra menningaráhrifa sem mótuðu m.a. feril Bítlanna.
Liverpool er einstök borg með sérstakan „Scouse-kúltur“ og nánast eigið tungumál. Liverpool er í dag ein vinsælasta ferðamannaborg Englands, annáluð fyrir fjörlegt skemmtanalíf, góða matsölustaði, fjölda frábærra verslana og hlýtt viðmót heimamanna.
Innifalið í verði:
• Flug með Play beint til Liverpool, út föstudaginn 22. mars 2024 og heim mánudaginn 25. mars
• Full farangursheimild (20 kg innrituð taska auk handfarangurs sem kemst undir sæti í vél)
• Akstur á milli flugvallar og hótels
• Gisting í 2ja manna herbergi með morgunverði í 3 nætur á Novotel, sem er 4* hótel í hjarta Liverpool-borgar
• Ferð í Bítlasafnið við Albert Dock (The Beatles Story)
• Tveggja tíma gönguferð um Albert Dock og miðborgina með innfæddum leiðsögumanni, þar sem saga borgarinnar og Bítlanna er samofin í frásögn
• Magical Mystery Tour, tveggja tíma skoðunarferð um æskuslóðir þeirra John, Paul, George og Ringo
• Sameiginlegur kvöldverður í The Cavern Restaurant í aðdraganda tónleika Jóns Ólafssonar
• Bítlarnir af fingrum fram með Jóni Ólafssyni í Cavern Club á sunnudeginum, þar sem hann fer í gegnum tónlist fjórmenninganna í tónum og tali í einkasal fyrir hópinn (The Cavern Lounge, þar sem Paul McCartney tróð m.a. upp 1999 og aftur 2018)
• Fararstjórn
Vinsamlega athugið! Cavern Club er með 18 ára aldurstakmark á kvöldin. Á því eru ekki neinar undantekningar, jafnvel þótt um lokaðan viðburð sé að ræða eins og þennan.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.