Ef þú hefur áhuga á pakkaferð á þennan leik, vinsamlega hafðu samband í [email protected]
Tomas Tuchel tók við Chelsea á miðri síðustu leiktíð eftir skrykkjótt gengi undir stjórn Frank Lampard. Til að gera langa sögu stutta gerði Tuchel það sem enginn reiknaði með. Í lok leiktíðar stóð Chelsea verðskuldað uppi sem sigurvegari í Champions League eftir að hafa komist í úrslit FA Cup og tryggt sér 4. sætið í Premier League. Eitthvað sem enginn reiknaði með um áramót.
Andstæðingar Chelsea á Stamford Bridge eru að þessu sinni annað Lundúnalið, West Ham United undir stjórn David Moyes. Moyes stýrði West Ham til besta árangurs félagsins í Premier League á síðustu leiktíð. Chelsea vann báðar viðureignir liðanna á síðustu leiktíð, 3:0 á heimavelli og 1:0 á London Stadium. Náði þar með að svara fyrir leiktíðina þar á undan, þar sem West Ham vann báða leiki liðanna
Innifalið í verði: Flug með Icelandair til London Heathrow, út að morgni 22. apríl og heim að kvöldi 25. apríl. Full farangursheimild. Gisting í 2ja manna herbergi með morgunverði í 3 nætur á 3* hóteli í miðborg London. Hospitality sæti á Stamford Bridge með aðgengi að gestastofu fyrir og eftir leik og í sumum tilvikum með inniföldum veitingum (mismunandi eftir svæðum).
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef tveir fullorðnir og tvö börn (15 ára og yngri) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x2
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og ákvæði vegna Covid-19
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 6 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Farþegar bera alfarið ábyrgð á að kynna sér þær Covid-19 reglur sem gilda um ferðalög til Bretlands og þær sóttvarnarskyldur sem þær reglur kunna að fela í sér.
- Ef landamæri loka vegna Covid-19 og aflýsa þarf ferð af þeim sökum býðst öllum val um fulla endurgreiðslu eða inneignarbréf.
- Um afbókanir á öðrum forsendum, m.a. vegna persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.