Stuðningsmenn Chelsea vilja eflaust gleyma síðustu leiktíð sem fyrst. Algjör farsi í leikmannakaupum setti liðið endanlega út af sporinu þrátt fyrir að þrír stjórar reyndu að ná tökum á ruglinu. Pochettino, fyrrum stjóri Spurs, á eftir að taka ærlega til á Stamford Bridge og koma liðinu í gang á ný.
Innifalið í verði:
– Flug með Play til London, út að morgni 3. mai og heim að morgni 6. maí.
– Farangursheimild hjá Play er 20 kg innrituð taska, auk lítillar tösku sem kemst undir sæti í vél. Þeir, sem kjósa að ferðast aðeins með hefðbundna handfarangurstösku, þurfa að innrita hana eða greiða sérstaklega fyrir hana.
– Gisting í 2ja manna herbergi með morgunverði í 3 nætur á 3* hóteli í miðborg Lundúna.
– Hospitality sæti á Stamford Bridge með aðgengi að gestastofu fyrir og eftir leik,
– Athugið að í pakkaferðum til London fylgir hvorki fararstjórn né akstur til og frá flugvelli.
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef tveir fullorðnir og tvö börn (15 ára og yngri) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x2
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.