Eftir meira en 15 ára fjarveru frá efstu deild sneri Leeds United aftur á meðal þeirra bestu fyrir tveimur árum. Liðið hafnaði þá í 9. sæti. Leeds lenti hins vegar í fallbaráttu á síðustu leiktið en slapp naumlega fyrir horn eftir dramatískar lokavikur.
Í mótlætinu var Marcelo Bielsa var látinn taka pokann sinn og það kom í hlut Jesse Marsch að rétta skútuna af og stýra henni að lokum í örugga höfn.
Hvernig Leeds reiðir af á þessari leiktíð kemur án efa til með að ráðast verulega af því hvernig liðinu vegnar á upphafsmánuðum hennar.
Innifalið í verði: Flug með Icelandair til Manchester, út að morgni 10. mars og heim um hádegið þann 13. mars. Full farangursheimild. Gisting í 2ja manna herbergi með morgunverði í 3 nætur á Premier Inn, sem er 3* hótel í miðborg Leeds og hospitalty sæti í East Stand ásamt veitingum.
Ath! Ferðir á milli Manchester-flugvallar og Leeds eru ekki innifaldar.
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef tveir fullorðnir og tvö börn (15 ára og yngri) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x2
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og ákvæði vegna Covid-19
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 6 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Farþegar bera alfarið ábyrgð á að kynna sér þær Covid-19 reglur sem gilda um ferðalög til Bretlands og þær sóttvarnarskyldur sem þær reglur kunna að fela í sér.
- Ef landamæri loka vegna Covid-19 og aflýsa þarf ferð af þeim sökum býðst öllum val um fulla endurgreiðslu eða inneignarbréf.
- Um afbókanir á öðrum forsendum, m.a. vegna persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.