
Liverpool eltist alla síðustu leiktíð við það afrek að vinna alla fjóra titlana sem í boði voru, fyrst enskra liða. Eftir maraþonleiktíð og 63 leiki varð uppskeran „aðeins“ tveir titlar, FA Cup og League Cup, en þeir stóru runnu liðinu úr greipum á síðustu viku leiktíðarinnar.
Liverpool varð í 2. sæti í Premier League, stigi á eftir Manchester City. Endurtekið efni frá vorinu 2019. Liverpool tapaði svo fyrir Real Madrid í úrslitaleik Champions League. Endurtekið efni frá vorinu 2018.
Klopp er nú á fullu við að byggja upp nýjan kjarna með yngri leikmönnum og það verður áskorun fyrir hann að halda Liverpool í toppbaráttu í gegnum breytingarferlið.
EYDDU NÆSTU ÁRAMÓTUM Í LIVERPOOL, TYLLTU ÞÉR Í LÚXUSSÆTI Á ANFIELD OG FAGNAÐU NÝJU ÁRI UM LEIÐ!
Innifalið í verði: Flug með Play til Liverpool, út að morgni 30. desember og heim um hádegi 2, janúar. Full farangursheimild. Gisting í 2ja manna herbergi með morgunverði í 3 nætur á Novotel, sem er 4* hótel í miðborg Liverpool og Centenary Club eða Beat Lounge hospitality sæti á Anfield með aðgengi að gestastofu fyrir og eftir leik.
Ath! Pakkferðum fylgir hvorki akstur til og frá flugvelli né fararstjórrn.
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.