Manchester City lauk síðustu leiktíð með eins glæsilegum hætti og hugsast getur með því að vinna Meistaradeild Evrópu eftir að hafa unnið enska bikarinn og Premier League í fimmta sinn á sl. 6 árum. Þessi fínpússaða „mulningsvél“ Pep Guardiola heldur bara áfram … og áfram! Þrennan á síðustu leiktíð. Fernan á þessari?
Innifalið í verði:
– Flug með Play til Liverpool, út að morgni 24. nóvember og heim að morgni 27. nóvember.
– Akstur til og frá flugvelli
– Farangursheimild hjá Play er 20 kg innrituð taska, auk lítillar tösku sem kemst undir sæti í vél. (Þeir, sem kjósa að ferðast aðeins með hefðbundna handfarangurstösku, þurfa að innrita hana eða greiða sérstaklega fyrir hana).
– Gisting í 2ja manna herbergi með morgunverði í 3 nætur á Ibis Styles í miðborg Manchester.
– Hospitality-sæti á Etihad með aðgengi að gestastofu fyrir og eftir leik.
– Athugið að pakkaferðum fylgir ekki fararstjórn.
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
- Athugið að herbergi á flestum hótelum rúma ekki meira en 3 með góðu móti. Tvíbreitt rúm er í Double-herbergjum. Uppbúinn svefnsófi er að auki ef um er að ræða Twin eða 3ja manna herb. Þriðji gestur verður að vera barn 15 ára eða yngra.
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.