Erik ten Hag var fljótur að setja mark sitt á leikstíl Manchester United og árangur hans á fyrstu leiktíðinni hlýtur að teljast vel ásættanlegur. Liðið vann deildarbikarinn, komst í úrslit FA Cup, tryggði sér sæti í Meistaradeildinni og komst í 8 liða úrslit Europa League.
Innifalið í verði:
– Flug með easyJet til Manchester, út kl. 11.20 þann 13. janúar og heim kl. 14.50 þann 16. janúar.
– Farangursheimild hjá easyJet er 23 kg innrituð taska, auk lítillar tösku sem kemst undir sæti í vél.
– Gisting í 2ja manna herbergi með morgunverði í 3 nætur á Premier Inn í miðborg Manchester.
– Hospitality-sæti á Old Trafford með aðgengi að gestastofu fyrir og eftir leik ásamt veitingum.
– Athugið að pakkaferðum fylgir ekki fararstjórn.
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
- Athugið að herbergi á flestum hótelum rúma ekki meira en 3 með góðu móti. Tvíbreitt rúm er í Double-herbergjum. Uppbúinn svefnsófi er að auki ef um er að ræða Twin eða 3ja manna herb. Þriðji gestur verður að vera barn 15 ára eða yngra.
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.