
Tottenham olli stuðningsmönnum sínum vonbrigðum á síðustu leiktíð. Ofan á óstöðugleika bætti gremja í kringum Antonio Conte ekki úr skák og á endanum hafnaði Spurs í 8. sæti. Næsta leiktíð veltur dálítið á því hvernig nýjum stjóra tekst að halda lykilmönnum og styrkja leikmannahópinn.
Innifalið í verði:
– Flug með Play til London, út að morgni 3. nóvember og heim að morgni 6. nóvember.
– Farangursheimild hjá Play er 20 kg innrituð taska, auk lítillar tösku sem kemst undir sæti í vél. Þeir, sem kjósa að ferðast aðeins með hefðbundna handfarangurstösku, þurfa að innrita hana eða greiða sérstaklega fyrir hana.
– Gisting í einbýli/tvíbýli skv. ósk um herbergjaskipan í 3 nætur á Ashburn Hotel, 111 Cromwell Rd í London. Morgunverður fylgir.
– Hospitality-sæti á Tottenham Hotspur Stadium með aðgengi að gestastofu fyrir og eftir leik ásamt veitingum.
– Athugið að í pakkaferðum til London fylgir hvorki fararstjórn né akstur til og frá flugvelli.
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.