VINSAMLEGA ATHUGIÐ AÐ EKKI ER BÚIÐ
AÐ OPNA FYRIR BÓKANIR Í ÞESSA FERÐ!
Það kom kannski engum á óvart að West Ham léti Manuel Pellegrini fjúka á síðustu leiktíð. Færri áttu þó sennilega von á því að David Moyes myndi leysa hann af hólmi, aðeins 18 mánuðum eftir að hann yfirgaf London Stadium í kjölfar skammtímaráðningar leiktíðina 2017-2018. Moyes gerði reyndar litlu betur en forverinn en mestu skipti að West Ham hélt sæti sínu í deildinni. Þar á bæ vilja menn gera mun betur á nýrri leiktíð.
Leikir West Ham og Chelsea eru oftar en ekki bráðskemmtilegir. Þrátt fyrir basl á síðustu leiktíð, þar sem margt benti til þess um tíma að West Ham myndi falla, tókst “The Hammers” að vinna báða leikina gegn Chelsea. Niðurstaðan varð 1:0 sigur á Stamford Bridge og svo vann West Ham seinni leikinn 3:2 eftir Covid-19 hléið sem gert var á Premier League.
Innifalið í verði: Flug með Icelandair til London, út 23. apríl og heim 26. apríl. Full farangursheimild. Gisting í 2ja manna herbergi án morgunverðar í 3 nætur á 3* hóteli í miðborg London. Sæti á langhlið vallar á London Stadium.
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef tveir fullorðnir og tvö börn (15 ára og yngri) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x2
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
Staðfestingargjald og fullgreiðsla ferðar
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun. Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 6 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar er aldrei endurgreitt.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.