West Ham náði á síðustu leiktíð sínum besta árangri í Premier League frá upphafi. Undir stjórn David Moyes léku Hamrarnir stórskemmtilega knattspyrnu oft á tíðum og voru í baráttu um Meistaradeildarsæti allt þar til á lokaspretti deildarinnar. Uppskeran varð að endingu sæti í Europa League á næstu leiktíð og það er reyndar alveg nýtt ofan á brauð á þessum slóðum í Lundúnum.
Að þessu sinni tekur West Ham á móti sjálfum Evrópumeisturum Chelsea. West Ham tapaði báðum viðureignunum gegn Chelsea á síðustu leiktíð. Chelsea vann fyrri leikinn 3:0 á Stamford Bridge og svo 1:0 sigur á London Stadium í seinni leiknum. Nú þurfa Moyes og hans menn að gyrða sig í brók!
Innifalið í verði: Flug til London, út að morgni 3. desember og heim þann 6. desember. Aðeins handfarangursheimild. Gisting í 2ja manna herbergi án morgunverðar í 3 nætur á 3* hóteli í miðborg London. Hospitality-sæti á London Stadium. Aðgengi að gestastofu fyrir og eftir leik. Frábært útsýni yfir völlinn.
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef tveir fullorðnir og tvö börn (15 ára og yngri) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x2
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og ákvæði vegna Covid-19
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 6 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Farþegar bera alfarið ábyrgð á að kynna sér þær Covid-19 reglur sem gilda um ferðalög til Bretlands og þær sóttvarnarskyldur sem þær reglur kunna að fela í sér.
- Ef landamæri loka vegna Covid-19 og aflýsa þarf ferð af þeim sökum býðst öllum val um fulla endurgreiðslu eða inneignarbréf.
- Um afbókanir á öðrum forsendum, m.a. vegna persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.