Undir stjórn David Moyes hefur West Ham styrkt stöðu sína í Premier League. Liðið varð í 6. sæti leiktíðina 2020-2021 en hafnaði í 7. sætinu á síðustu leiktíð.
Fullvíst má telja að velgengni liðsins í Europa League – en West Ham komst þar alla leið í undanúrslit – hafi tekið sinn toll af liðinu í Premier League undir vorið. Meiðsli lykilmanna settu tvímælalaust strik í reikninginn. West Ham var framan af síðustu leiktíð í baráttu um sæti í Champions League en svo fór að lokum að liðið missti ekki bara af þeirri lest heldur líka af sæti i Europa League.
West Ham hefur þótt spila beinskeyttan fótbolta undir stjórn Moyes, þar sem áhersla er lögð á að nýta skyndisóknir og föst leikatriði.
Innifalið í verði: Flug með easyJet til London, út að morgni 20. janúar og heim eftir hádegi þann 23. janúar. Full farangursheimild. Gisting í 2ja manna herbergi með morgunverði í 3 nætur á 3* hóteli í miðborg Lundúna og Hospitality sæti fyrir miðjum velli á London Stadium með aðgengi að gestastofu fyrir og eftir leik.
Hvernig á að bóka?
- Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x1
- Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x2
- Ef tveir fullorðnir og barn (15 ára og yngra) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x1
- Ef tveir fullorðnir og tvö börn (15 ára og yngri) deila herbergi þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Barnagjald” x2
- Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x1
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
- Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
- Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
- Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
- Staðfestingargjald ferðar fæst aðeins endurgreitt ef afbókað er innan 5 sólarhringa frá pöntun, en er annars óendurkræft að öllu leyti.
- Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
Kíktu á umsagnir viðskiptavina okkar á Facebook-síðu Premierferða.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.